22.7.2008 | 22:55
Enn alger klaufi..........
Eins og sést er ég enþá að átta mig á stjórnborði þessarar síðu. Ég setti töframyndbandið inn tvisvar og get ekki eytt því út. En þið fyrirgefið mér það að sjálfsögðu!!
Í dag var geggjað veður, 23 stiga hiti og næs. Ég fór með Yvett ( konuna hans pabba) í mæðraskoðun á Fáskrúðsfj. Ég er sko að verða stóra systir fyrir þá sem ekki vita!!!! Betra er seint en aldrei! Strákarnir þrír fóru með mér og biðum við í tvo tíma úti í rjómablíðunni. Svo fórum við í Krónuna og svo bara heim. Sigþór dröslaði trampólíninu heim ásamt tveim öðrum góðum mönnumog nú er unnið hörðum höndum við að laga skemmdirnar.. Vonandi kemst það fljótlega í lag svo ég geti haldið áfram að æfa grindarbotninn minn!
Á morgun er svo stefnan tekin á Neskaupsstað í sund með drengina og kannski Krissu mágkonu og hennar börn. Þ.e.a.s. ef veðurguðirnir verða okkur jafn hliðhollir og i dag.. Kæru vinir, guð geymi ykkur.
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Um bloggið
Hanna Björk Birgisdóttir
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.