15.2.2009 | 22:55
Its alive..
Já, ég held að ég haldi bara áfram að virkja síðuna mína, þar sem ég get ekki fullnægt skrifþörfinni minni á þessari blessaðri feisbók sem ég var að stofna..
En það sem á mína daga hefur drifið sl. mánuð er að mestu þessi sama rútína. Nema það, að ég er farin að vinna meira. Við opnuðum líkamsræktar aðstöðu uppi í íþróttahúsinu í byrjun febrúar og þar af leiðandi fór vinnutíminn minn að mestu leyti fram í eftirvinnu. Ég vinn núna alla daga til átta á kvöldin, en hef eyður flesta daga milli tólf og hálf fjögur.
Viktor minn er á fullu í fótboltanum og erum við fjölskyldan að fara á Akureyri nærstu mánaðarmót með guttann á Goðamót. Við erum búin að fá íbúð hjá stéttarfélaginu mínu og okkur hlakkar bara til að fara í smá frí saman. Daníel og pabbi Viktors verða einnig á Akureyri þessa helgi, þannig að drengurinn fær nóg áhorf!!
Flokkur: Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 23:48 | Facebook
Um bloggið
Hanna Björk Birgisdóttir
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.